Ársreikningur
2016
Skýrsla og áritun forstjóra
Afkoma ÁTVR á árinu 2016 var betri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Hagnaður ársins var 1.629 m.kr. Eignir námu 6.938 m.kr, skuldir voru 2.104 m.kr. og eigið fé nam 4.834 m.kr. í árslok 2016. Greiddur var 1.000 m.kr. arður í ríkissjóð.
Áfengi var selt fyrir 26.248 m.kr. með virðisaukaskatti. Sala áfengis í lítrum jókst um 6,44% frá árinu á undan og seldust 20.866 þús. lítrar, þar af var bjórsala 16.400 þús lítrar. Sala tóbaks nam 11.576 m.kr. með virðisaukaskatti. ÁTVR innheimtir tóbaksgjald. Gjaldið nam 5.530 m.kr. á árinu 2016 og lækkaði um 120 m.kr. frá árinu 2015. Sala vindlinga í magni drógst saman um 6,1%. Sala vindlinga nam 1.003 þús kartonum og af vindlum seldust 5.560 þúsund stykki. Selt magn neftóbaks var 39.973 kg.
Á árinu fengu 722 starfsmenn greidd laun hjá ÁTVR. Margir eru í hlutastarfi. Lætur nærri að ársverk hafi verið 312 og hefur þeim fjölgað um 25 frá 2015.
Víða var unnið að endurnýjun og lagfæringum. Þær helstu voru eftirfarandi: Vínbúðin á Akranesi var endurnýjuð frá grunni. Vínbúðin á Sauðárkróki var stækkuð. Vínbúðin í Smáralind var flutt á nýjan stað í verslunarmiðstöðinni og settur upp bjórkælir.
Ný afgreiðsluborð voru sett upp á Akureyri, Akranesi, Dalvegi í Heiðrúnu, Kringlunni og á Sauðárkrók. Lokið var við lóðarframkvæmdir að Stuðlahálsi 2. Í Vínbúðinni í Stykkishólmi var skipt um innréttingar og málað.
Lög um um gjald af áfengi og tóbaki var breytt í upphafi árs þannig að áfengisgjald var hækkað um 20,2-21,7% eftir flokkum á móti lækkun á virðisaukaskatti úr 24% þrepi í 11%. Tóbaksgjald var hækkað um 2,5-2,7% eftir flokkum.
Forstjóri ÁTVR staðfestir ársreikning fyrirtækisins fyrir árið 2016 með undirritun sinni.
Reykjavík, 17. mars 2017
Ívar J. Arndal, forstjóri
Áritun endurskoðenda
Til ÁTVR
Við höfum endurskoðað meðfylgjandi ársreikning ÁTVR fyrir árið 2016. Ársreikningurinn hefur að geyma skýrslu forstjóra, rekstrarreikning, efnahagsreikning,
sjóðstreymisyfirlit, upplýsingar um mikilvægar reikningsskilaaðferðir og aðrar
skýringar.
Við staðfestum að samkvæmt okkar bestu vitund eru í skýrslu forstjóra, sem fylgir ársreikningi þessum, veittar þær upplýsingar sem þar ber að veita í samræmi við lög um ársreikninga og koma ekki fram í skýringum.
Það er álit okkar að ársreikningurinn gefi glögga mynd af fjárhagsstöðu ÁTVR 31. desember 2016, afkomu hennar og breytingu á handbæru fé á árinu 2016, í samræmi við lög um ársreikninga.
Grundvöllur fyrir áliti
Endurskoðað var í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla
fyrir opinbera aðila. Ábyrgð okkar
samkvæmt þeim stöðlum er nánar lýst í kaflanum um ábyrgð endurskoðanda hér á
eftir. Við erum óháð ÁTVR og í samræmi við settar siðareglur fyrir
endurskoðendur á Íslandi höfum við uppfyllt ákvæði þeirra. Við teljum að við
endurskoðunina hafi verið aflað nægilegra og viðeigandi gagna til að
undirbyggja álit okkar.
Ábyrgð forstjóra á
ársreikningnum
Forstjóri eru ábyrgur
fyrir gerð og framsetningu ársreikningsins í samræmi við lög um ársreikninga.
Hann er einnig ábyrg fyrir því innra eftirliti sem nauðsynlegt er varðandi gerð
og framsetningu ársreikningsins þannig að hann sé án verulegra annmarka hvort
sem er vegna sviksemi eða mistaka.
Ábyrgð endurskoðenda
á endurskoðun ársreikningsins
Markmið okkar er að afla nægjanlegrar vissu um að
ársreikningurinn sé án verulegra annmarka, hvort sem er af völdum sviksemi eða
mistaka og að gefa út áritun sem felur í sér álit okkar. Nægjanleg vissa er
mikil vissa, en ekki trygging þess að endurskoðun framkvæmd í samræmi við
alþjóðlega endurskoðunarstaðla fyrir opinbera aðila muni uppgötva allar
verulegar skekkjur séu þær til staðar. Skekkjur geta orðið vegna mistaka eða
sviksemi og eru álitnar verulegar ef þær gætu haft áhrif á fjárhagslega
ákvarðanatöku notenda ársreikningsins, einar sér eða samanlagðar.
Endurskoðun okkar er í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla fyrir opinbera aðila og hún byggir á faglegri dómgreind og gagnrýni. Við framkvæmum einnig eftirfarandi:
- Greinum og metum hættuna á verulegri skekkju í
ársreikningnum, hvort sem er vegna mistaka eða sviksemi, skipuleggjum og
framkvæmum endurskoðunaraðgerðir til að bregðast við þeirri hættu og öflum
endurskoðunargagna sem eru nægjanleg og viðeigandi til að undirbyggja álit
okkar. Hættan á að uppgötva ekki verulega skekkju vegna sviksemi er meiri en að
uppgötva ekki skekkju vegna mistaka, þar sem sviksemi getur falið í sér
samsæri, fölsun, villandi framsetningu ársreiknings, að einhverju sé viljandi
sleppt eða að farið sé framhjá innri eftirlitsaðgerðum.
- Öflum skilnings á innra eftirliti, sem snertir
endurskoðunina í þeim tilgangi að skipuleggja viðeigandi endurskoðunaraðgerðir
og kanna hvort það tryggir viðunandi árangur.
- Metum hvort reikningsskilaaðferðir og
reikningshaldslegt mat stjórnenda ásamt tengdum skýringum séu viðeigandi.
- Metum í heild sinni hvort ársreikningurinn gefi
glögga mynd af undirliggjandi viðskiptum og atburðum, metum framsetningu,
uppbyggingu, innihald og þar með taldar skýringar með tilliti til glöggrar
myndar.
Við upplýsum stjórnendur um áætlað umfang og tímasetningu
endurskoðunarinnar og mikilvæg atriði sem kunna að koma upp við endurskoðun
okkar þar á meðal verulega annmarka á innra eftirliti.
Ríkisendurskoðun, 17. mars 2017
Sveinn Arason, ríkisendurskoðandi
Óskar Sverrisson, endurskoðandi
Rekstrarreikningur árið 2016
Skýringar | 2016 | 2015 | |
---|---|---|---|
Rekstrartekjur | |||
Sala áfengis | 23.646.601 | 19.772.887 | |
Sala tóbaks | 9.335.327 | 9.529.577 | |
Sala umbúða o.fl. | 76.508 | 92.997 | |
33.058.436 | 29.395.461 | ||
Rekstrargjöld | |||
Vörunotkun | 10 | 28.036.913 | 25.026.888 |
Laun og launatengd gjöld | 11-13 | 2.123.712 | 1.892.613 |
Húsnæðiskostnaður | 547.552 | 551.307 | |
Sölu- og dreifingarkostnaður | 174.128 | 213.473 | |
Stjórnunar- og skrifstofukostnaður | 288.869 | 264.292 | |
Annar rekstrarkostnaður | 45.115 | 37.699 | |
Afskriftir | 15 | 221.741 | 177.536 |
31.438.030 | 28.163.808 | ||
Rekstrarhagnaður | 1.620.406 | 1.231.653 | |
Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) | 14 | 9.020 | ( 10.736 ) |
Hagnaður ársins | 1.629.426 | 1.220.917 | |
Fjárhæðir eru í þúsundum króna
Efnahagsreikningur 31. desember 2016
Skýringar | 2016 | 2015 | |
---|---|---|---|
Eignir | |||
Rekstrarfjármunir | 4, 15 | 1.158.329 | 1.219.800 |
Eignarhlutir í öðrum félögum | 5, 16 | 7.500 | 7.500 |
Fastafjármunir samtals | 1.165.829 | 1.227.300 | |
Birgðir | 6, 17 | 2.114.426 | 1.608.361 |
Viðskiptakröfur | 7, 18 | 1.704.020 | 1.565.459 |
Handbært fé | 8 | 1.953.394 | 1.541.907 |
Veltufjármunir samtals | 5.771.840 | 4.715.727 | |
Eignir samtals | 6.937.669 | 5.943.027 | |
Eigið fé og skuldir | |||
Eigið fé | |||
Óráðstafað eigið fé | 19 | 4.833.408 | 4.203.982 |
Eigið fé samtals | 4.833.408 | 4.203.982 | |
Skammtímaskuldir | |||
Viðskiptaskuldir | 9 | 1.603.977 | 1.246.004 |
Aðrar skammtímaskuldir | 500.284 | 493.041 | |
Skammtímaskuldir samtals | 2.104.261 | 1.739.045 | |
Eigið fé og skuldir samtals | 6.937.669 | 5.943.027 | |
Skuldbindingar | 20 |
Fjárhæðir eru í þúsundum króna
Sjóðstreymi árið 2016
Skýringar | 2016 | 2015 | |
---|---|---|---|
Rekstrarhreyfingar | |||
Hagnaður ársins | 1.629.426 | 1.220.917 | |
Rekstrarliðir sem ekki hafa áhrif á sjóðstreymi: | |||
Afskriftir | 15 | 221.741 | 177.536 |
Tap (söluhagnaður) af fastafjármunum | 1.105 | ( 22.045 ) | |
Veltufé frá rekstri | 1.852.272 | 1.376.408 | |
Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum: | |||
Birgðir, (hækkun) | ( 506.065 ) | ( 218.771 ) | |
Skammtímakröfur, (hækkun) | ( 138.561 ) | ( 121.669 ) | |
Skammtímaskuldir, hækkun | 365.216 | 70.195 | |
( 279.410 ) | ( 270.245 ) | ||
Handbært fé frá rekstri | 1.572.862 | 1.106.163 | |
Fjárfestingarhreyfingar | |||
Innréttingar og annar búnaður | 15 | (128.818) | ( 141.124 ) |
Bifreiðar | 15 | ( 32.557 ) | ( 34.990 ) |
Söluverð rekstrarfjármuna | 0 | 31.654 | |
Fjárfestingarhreyfingar | ( 161.375 ) | ( 144.460 ) | |
Fjármögnunarhreyfingar | |||
Arður til ríkissjóðs | 19 | ( 1.000.000 ) | ( 1.500.000 ) |
Fjármögnunarhreyfingar | ( 1.000.000 ) | ( 1.500.000 ) | |
Hækkun (lækkun) á handbæru fé | 411.487 | ( 538.297 ) | |
Handbært fé í ársbyrjun | 1.541.907 | 2.080.204 | |
Handbært fé í lok ársins | 1.953.394 | 1.541.907 | |
Fjárhæðir eru í þúsundum króna
Skýringar
Reikningsskilaaðferðir
Grundvöllur reikningsskila
- Ársreikningur ÁTVR er gerður í samræmi við lög nr. 3/2006 um ársreikninga og reglugerð nr. 696/1996 um framsetningu og innihald ársreikninga og samstæðureikninga.
Ársreikningurinn byggir á kostnaðarverðsreikningsskilum og er gerður eftir sömu reikningsskilaaðferðum og árið áður. Ársreikningurinn er gerður í íslenskum krónum.
Skattar - Ríkisstofnanir og ríkisfyrirtæki greiða almennt ekki tekjuskatta.
Erlendir gjaldmiðlar og innlendar vísitölur - Eignir í erlendum gjaldmiðlum eru umreiknaðar í íslenskar krónur á kaupgengi í árslok en skuldir eru umreiknaðar á sölugengi. Viðskipti í erlendum gjaldeyri á árinu eru umreiknuð í íslenskar krónur á viðskiptadegi. Gengismunur sem myndast er færður í rekstrarreikning.
Peningalegar eignir og skuldir sem bundnar eru verðtryggingu eru færðar miðað við vísitölur sem tóku gildi 1. janúar 2017. Breytingar sem myndast eru færðar í rekstrarreikning.
Rekstrarfjármunir - Varanlegir rekstrarfjármunir eru færðir til eignar á kostnaðarverði. Frá kostnaðarverði eru dregnar reiknaðar afskriftir.
Kostnaðarverð varanlegra rekstrarfjármuna samanstendur af kaupverði og öllum kostnaði við að koma eignunum á viðeigandi stað og í nothæft ástand.
Afskriftir eru reiknaðar sem fastur árlegur hundraðshluti af kostnaðarverði miðað við áætlaðan endingartíma og eignarhaldstíma.
Eignarhlutar í öðrum félögum
- Eignarhlutar í félögum eru færðir á nafnverði.
Birgðir - Birgðir samanstanda af endursöluvörum og rekstrarvörum. Birgðirnar eru metnar á síðasta innkaupsverði að teknu tilliti til gallaðra og úreltra vara.
Viðskiptakröfur - Greiðslukortakröfur eru færðar meðal viðskiptakrafna. Viðskiptakröfur eru færðar á kostnaðarverði.
Handbært fé - Handbært fé samanstendur af sjóði og bankainnstæðum.
Viðskiptaskuldir
- Viðskiptaskuldir eru færðar á kostnaðarverði.
Vörunotkun - Tóbaksgjald er innheimt við sölu tóbaks og er því skilað mánaðarlega til Tollstjóra. Tóbaksgjaldið er skilgreint sem hluti af kostnaðarverði seldra vara í bókhaldi ÁTVR. Alls námu greiðslur tóbaksgjalda 5.530 m.kr. á árinu 2016 en voru 5.650 m.kr. á árinu 2015.
Sundurliðun vörunotkunar
2016 | 2015 | |
---|---|---|
Vörunotkun, áfengi | 20.110.049 | 16.946.104 |
Vörunotkun, tóbak | 7.905.918 | 8.060.805 |
Vörunotkun, umbúðir | 20.946 | 19.979 |
28.036.913 | 25.026.888 | |
Fjárhæðir eru í þúsundum króna
Starfsmannamál
- Laun og launatengd gjöld sundurliðast þannig:
2016 | 2015 | |
---|---|---|
Dagvinnulaun | 1.175.428 | 980.491 |
Yfirvinna | 534.803 | 548.301 |
Launatengd gjöld | 395.462 | 353.759 |
Viðbótarframlag til lífeyrissjóðs | 4.110 | 7.572 |
Áfallið reiknað orlof, breyting | 13.909 | 2.490 |
2.123.712 | 1.892.613 | |
Fjárhæðir eru í þúsundum króna
- Launagjöld hækka um 12,2% milli ára. Reiknuð ársverk á árinu 2016 voru 312 en ársverk reiknuð með sama hætti árið 2015 voru 287 sem er hækkun um 25 ársverk eða 8,7%.
Laun og launatengd gjöld vegna forstjóra námu 19,2 m.kr. en voru 17,8 m.kr. árið á undan.
Áunnið orlof starfsmanna til desemberloka er reiknað og fært í ársreikninginn. Það nam 112,4 m.kr. í árslok 2016 en til samanburðar var það 98,5 m.kr. árið áður. - Skuldbindingar ÁTVR vegna eftirlauna núverandi og fyrrverandi starfsmanna voru gerðar upp á árinu 1999. Skuldbindingar sem falla til árlega eru gerðar upp við Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins jafnóðum. Samkvæmt uppgjöri LSR námu lífeyrisskuldbindingar í árslok 2016 13,5 m.kr.
Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld - Sundurliðun fjármunatekna og (fjármagnsgjalda)
2016 | 2015 | |
---|---|---|
Vaxtatekjur | 140.693 | 112.368 |
Arðstekjur | 750 | 750 |
Þóknanir vegna debet- og kreditkorta | ( 103.292 ) | ( 100.154 ) |
Fjármagnstekjuskattur | ( 28.105 ) | ( 22.381 ) |
Vaxtagjöld | ( 1.026) | ( 1.319 ) |
9.020 | ( 10.736 ) | |
Fjárhæðir eru í þúsundum króna
Rekstrarfjármunir
- Varanlegir rekstrarfjármunir og afskriftir greinast þannig:
Bifreiðar | Fasteignir | Innréttingar og annar búnaður | Samtals | |
---|---|---|---|---|
Stofnverð 1.1.2016 | 242.543 | 1.240.143 | 1.072.916 | 2.555.602 |
Viðbót á árinu | 32.557 | 0 | 128.818 | 161.375 |
Selt og niðurlagt á árinu | 0 | ( 4.420 ) | 0 | ( 4.420 ) |
Stofnverð 31.12.2016 | 275.100 | 1.235.723 | 1.201.734 | 2.712.557 |
Afskrifað 1.1.2016 | 119.897 | 705.563 | 510.342 | 1.335.802 |
Afskrifað á árinu | 31.608 | 23.111 | 167.022 | 221.741 |
Selt og niðurlagt á árinu | 0 | ( 3.315 ) | 0 | ( 3.315 ) |
Afskrifað 31.12.2016 | 151.505 | 725.359 | 677.364 | 1.554.228 |
Bókfært verð 31.12.2016 | 123.595 | 510.364 | 524.370 | 1.158.329 |
Afskriftarhlutföll | 12-15% | 2-4% | 12-20% |
Gjaldfærð afskrift á rekstrarreikningi nemur 221.741 þús. kr.
Fasteignamat og vátryggingamat eigna félagsins í árslok greinist þannig:
Fasteignamat | Brunabótamat | Bókfært verð | |
---|---|---|---|
Fasteignir og lóðir | 2.370.496 | 3.149.290 | 510.364 |
Fjárhæðir eru í þúsundum króna
Eignarhlutar í félögum
- Hlutabréf í Endurvinnslunni hf. eru færð á nafnverði 7.500 þús. kr. Á árinu 2016 greiddi félagið 750 þús. kr. í arð til ÁTVR.
Birgðir - Birgðir um áramót skiptast í áfengi, tóbak, umbúðir og rekstrarvörur:
2016 | 2015 | |
---|---|---|
Áfengi | 1.879.926 | 1.431.485 |
Tóbak | 202.705 | 143.752 |
Umbúðir | 17.450 | 15.447 |
Rekstrarvörubirgðir | 14.345 | 17.677 |
2.114.426 | 1.608.361 | |
Fjárhæðir eru í þúsundum króna
Viðskiptakröfur
- Viðskiptakröfur sundurliðast þannig:
2016 | 2015 | |
---|---|---|
Kröfur vegna greiðslukorta | 1.526.868 | 1.426.950 |
Viðskiptakröfur | 177.152 | 138.509 |
1.704.020 | 1.565.459 | |
Fjárhæðir eru í þúsundum króna
Eigið fé
- Yfirlit eiginfjárreikninga
Óráðstaðað eigið fé | |
---|---|
Eigið fé 1.1. | 4.203.982 |
Hagnaður skv. rekstrarreikningi | 1.629.426 |
Arður til ríkissjóðs | ( 1.000.000 ) |
Eigið fé 31.12 | 4.833.408 |
Fjárhæðir eru í þúsundum króna
Önnur mál
- Í tengslum við starfsemi ÁTVR voru 38 húsaleigusamningar í gildi í árslok 2016.
Kennitölur - Fimm ára yfirlit í milljónum króna
2016 | 2015 | 2014 | 2013 | 2012 | |
---|---|---|---|---|---|
Rekstur: | |||||
Rekstrartekjur | 33.058 | 29.395 | 28.645 | 27.401 | 26.605 |
Rekstrargjöld | ( 31.216 ) | ( 27.985 ) | ( 27.146 ) | ( 25.932 ) | ( 25.100 ) |
Rekstrarhagn. f. afskr. | 1.842 | 1.410 | 1.499 | 1.469 | 1.505 |
Afskriftir | ( 222 ) | ( 178 ) | ( 205 ) | ( 184 ) | ( 175 ) |
Rekstrarhagnaður | 1.620 | 1.232 | 1.295 | 1.285 | 1.330 |
Hreinar fjárm.tekjur | 9 | -11 | -7 | 18 | 10 |
Hagnaður ársins | 1.629 | 1.221 | 1.288 | 1.304 | 1.340 |
Efnahagur: | |||||
Fastafjármunir | 1.166 | 1.227 | 1.238 | 1.133 | 1.104 |
Veltufjármunir | 5.772 | 4.716 | 4.914 | 5.483 | 5.477 |
Eignir alls | 6.938 | 5.943 | 6.152 | 6.616 | 6.581 |
Eigið fé | 4.834 | 4.204 | 4.483 | 4.595 | 4.491 |
Skammtímaskuldir | 2.104 | 1.739 | 1.669 | 2.021 | 2.090 |
Eigið fé og skuldir alls | 6.938 | 5.943 | 6.152 | 6.616 | 6.581 |
Helstu kennitölur um afkomu og fjárhagsstöðu fyrirtækisins á síðustu fimm árum:
2016 | 2015 | 2014 | 2013 | 2012 | |
---|---|---|---|---|---|
Rek.hagn.f.afskr./EBITDA | 5,6% | 4,8% | 5,2% | 5,4% | 5,7% |
Veltufjárhlutfall | 2,74 | 2,71 | 2,94 | 2,71 | 2,62 |
Eiginfjárhlutfall | 69,7% | 70,7% | 72,9% | 69,5% | 68,2% |
Arðsemi eigin fjár | 38,8% | 27,2% | 28,0% | 29,0% | 31,9% |