Heimsmarkmiðin

Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun tóku gildi í byrjun árs 2016. ÁTVR hefur innleitt þau inn í ferla fyrirtækisins. Þetta eru víðtækustu markmið sem ríki heims hafa komið sér saman um og stefnt er að því að tryggja velmegun og mannréttindi um allan heim fyrir árið 2030.

Aðal áherslan hjá ÁTVR er að vinna í fimm heimsmarkmiðum en þau falla vel að áherslum fyrirtækisins. Ábyrg neysla (12) en þar koma lýðheilsusjónarmið við sögu, verndun jarðarinnar (13),  jafnrétti (5 & 10), heilsa og vellíðan (3) og aðfangakeðjan en hún kemur sterk inn í restina af markmiðunum.