GRI
Ársskýrsla ÁTVR er gefin út í fimmta sinn í samræmi við viðmiðunarreglur Global Reporting Initiative (GRI). Upplýsingar í skýrslunni gilda fyrir almanaksárið 2016. Fyrsta árið var viðmiðum GRI 3.1 fylgt, en við gerð þessarar skýrslu fylgjum við viðmiðum G4. Skýrslan á einnig að þjóna sem framvinduskýrsla til Global Compact (COP).
EFNISYFIRLIT YFIR GRI
Efnisyfirlitið inniheldur upplýsingagjöf varðandi stjórnunaraðferð (DMA) og sértæk viðmið sem hafa verið valin og byggja þau á mikilvægustu atriðum sem eiga við sjálfbæran rekstur fyrirtækisins.
Í liðum G4-1 til G4-58 er markmiðið að gera grein fyrir starfsemi fyrirtækisins, stefnu, stærð og staðsetningu þess, stjórnarháttum auk umgjarðar skýrslunnar. Einnig er lýst hvernig unnið er með einstaka málaflokka samfélagslegrar ábyrgðar. ÁTVR hefur uppfyllt kröfur fyrir kjarna (e. Core) en víðtækari upplýsingagjöf (e. Comprehensive) birtist á komandi árum.
Taflan hér fyrir neðan sýnir hvar greint er frá aðgerðum í ársskýrslu 2016 sem greinir frá samfélagslegri ábyrgð eða í GRI viðauka.
Stefna og greining
GC*
Upplýsingar um fyrirtækið
GC*
Skuldbindingar við ytri málefni
Skilgreiningar á efnislegum þáttum og mörkum þeirra
Þátttaka og skuldbindingar hagsmunaaðila
Viðfangsefni skýrslunnar
GRI yfirlit
Stjórnarhættir
GC*
Uppbygging og samsetning stjórnarhátta
Hlutverk stjórnar varðandi tilgang, gildi og stefnumótun
Frammistöðumat stjórnar
Hlutverk stjórnar í áhættustjórnun
Hlutverk stjórnar í skýrslugjöf varðandi sjálfbærni
Hlutverk stjórnar í efnahagslegu, umhverfislegu og samfélagslegu árangursmati
Starfskjarastefna og hvatningakerfi
Siðfræði og heilindi
GC*
Stöðluð upplýsingagjöf varðandi yfirlit um: Gildi, grundvallarreglur, kröfur og viðmið fyrirtækisins
Efnahagur
GC*
Fjárhagsleg frammistaða
Nálægð á markaði
Óbein efnahagsleg áhrif
Innkaupastefna
Umhverfismál
GC*
Efnisnotkun
Orka
Vatn
Líffræðileg fjölbreytni
Losun
Frárennsli og úrgangur
Hlíting
Samgöngur
Heildarþáttur
Umhverfisáhrif birgja
Umhverfismál og höndlun umkvörtunarefna
Samfélagsmál
GC*
Vinnumál og starfsskilyrði
Vinnuafl
Kjaramál
Vinnueftirlit
Þjálfun og menntun
Fjölbreytileiki og jöfn tækifæri
Launajafnrétti
Mat á starfsskilyrðum starfsfólks birgja
Starfsskilyrði og höndlun umkvörtunarefna
Mannréttindi
Fjárfestingar
Jafnræði
Félagafrelsi og sameiginlegar kjaraviðræður
Barnavinna
Nauðungarvinna og skylduvinna
Öryggismál
Frumbyggjaréttur
Mat
Mat á mannréttindamálum birgja
Mannréttindi og höndlun umkvörtunarefna
Samfélag
GC*
Samfélagið
Nærsamfélag
Spilling
Opinber stefna
Samkeppnishamlandi hegðun
Hlíting
Mat á samfélagsáhrifum birgja
Samfélagsáhrif og höndlun umkvörtunarefna
Félagslegir þættir
GC*
Vöruábyrgð
Heilsa og öryggi viðskiptavina
Merkingar á vöru og þjónustu
Markaðssetning
Hlíting
Viðauki
G4-10
Flokkun vinnuafls og hvernig ráðningarsamningar
skiptast eftir kyni og starfi
Fjöldi starfsfólks í desember | Alls | Konur | Karlar | |
---|---|---|---|---|
2014 | 427 | 256 | 171 | |
2015 | 442 | 262 | 180 | |
2016 | 542 | 326 | 216 | |
Fastráðnir | ||||
2014 | 209 | 111 | 98 | |
2015 | 214 | 111 | 103 | |
2016 | 236 | 126 | 116 | |
Tímavinnustarfsfólk | ||||
2014 | 218 | 145 | 73 | |
2015 | 228 | 151 | 77 | |
2016 | 306 | 197 | 109 |
Heildarfjöldi eftir ráðningarformi og starfi | |||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Fullt starf | Hlutastarf | Tímavinna | |||||
Fjöldi | % | Fjöldi | % | Fjöldi | % | Samtals | |
Dreifingarmiðstöð | 50 | 81 | 0 | 0 | 12 | 19 | 62 |
Skrifstofa | 45 | 88 | 4 | 8 | 2 | 4 | 51 |
Starfsfólk í Vínbúðum | 30 | 9 | 26 | 7 | 292 | 84 | 348 |
Stjórnendur í Vínbúðum | 41 | 51 | 40 | 49 | 0 | 0 | 81 |
Alls | 166 | 31 | 70 | 13 | 306 | 56 | 542 |
G4-EC1
Efnahagsreikningur eftir hagsmunaaðilum
Hagsmunaaðili | 2016 | 2015 | 2014 | |
---|---|---|---|---|
Tekjur | ||||
Sala áfengis og tóbaks | Viðskiptavinir | 33.067 | 29.385 | 28.638 |
Gjöld | ||||
Vörunotkun (vörur og þjónusta) | Birgjar | 29.283 | 26.239 | 25.541 |
Laun og launatengd gjöld | Mannauður | 2.124 | 1.893 | 1.747 |
Arður | Eigandi | 1.000 | 1.500 | 1.400 |
Félagslegar fjárfestingar | Samfélagið | 32 | 32 | 62 |
Eftirstöðvar | 629 | -279 | -112 |
Upphæðir í m.kr.
G4-EC9
Hlutfall innkaupa frá birgjum úr nærsamfélagi
ÁTVR skilgreinir Ísland sem nærsamfélag sitt. Allar vörur eru keyptar af innlendum áfengis- og tóbaksbirgjum. Virkir áfengisbirgjar eru um 60 talsins og tóbaksbirgjar 5.
Helstu niðurstöður viðhorfskönnunar á meðal áfengis- og tóbaksbirgja. Könnunin var gerð í nóvember 2016.
Ánægðir | Hlutlausir | Óánægðir | |
---|---|---|---|
Fyrirkomulag áfengissölu á Íslandi | 68% | 10% | 22% |
Ánægja með ÁTVR á heildina litið | 77% | 8% | 15% |
Tryggja vöruvalsreglur hlutleysi gagnvart birgjum? | 43% | 32% | 25% |
Þjónusta innkaupadeildar | 91% | 7% | 2% |
Þjónusta dreifingarmiðstöðvar | 70% | 20% | 10% |
Upplýsingagjöf frá ÁTVR | 57% | 28% | 15% |
G4-EN1
Notkun á hráefni eftir þyngd eða magni
Sólarræsting sér um ræstingar á Stuðlahálsi og var fyrsta Svansvottaða ræstingarfyrirtækið á Íslandi. Í Vínbúðum sér starfsfólk um þrif. Árið 2016 voru notaðir 644 lítrar af ræstiefnum og eru 90% þeirra umhverfisvottaðar, ýmist með norræna umhverfismerkinu Svaninum eða Evrópublóminu, umhverfismerki ESB. Unnið er að því að allar ræstingarvörur verði umhverfisvottaðar.
2014 | 2015 | 2016 | Markmið 2016 | ||
---|---|---|---|---|---|
Prentun | |||||
Skrifstofupappír | 8,5 | 6,7 | 6,1 | 7,0 | kg/stg. |
Prentun umhverfisvottuð | 98% | 97% | 100% | 100% | hlutfall |
Einnota vörur | |||||
Plastglös | 17 | 0 | 0 | 0 | stk./stg. |
Pappamál | 43 | 5 | 9 | 10 | stk./stg. |
Ræstiefni | |||||
Sólarræsting | 100% | 100% | 100% | 100% | hlutfall |
Ræstivörur | 88% | 87% | 90% | 90% | hlutfall |
Umbúðir | |||||
Seldir plastpokar | 91.759 | 83.596 | 80.830 | 70.000 | stk./m.ltr. |
Strekkifilma | 761 | 418 | 463 | 575 | kg/m.ltr. |
G4-EN3
Bein orkunotkun eftir orkutegund
Þriðjungur raforkunotkunar fyrirtækisins er á Stuðlahálsi. Til að fylgjast með orkunotkun er í notkun sérstakt hússtjórnarkerfi sem vaktar notkun rafmagns og hita og stýrir álagi á Stuðlahálsi 2 en þar eru höfuðstöðvar fyrirtækisins, dreifingarmiðstöð og Vínbúðin Heiðrún. Í grænu skorkorti er sett markmið og fylgst með orkunotkun. Til einföldunar er notkunin umreiknuð í meðalheimilisnotkun og markmið og mælingar miðast við hana. Rafmagnsnotkun á Stuðlahálsi var sambærileg notkun 131 heimila og heitt vatn samsvaraði notkun 120 heimila og jókst milli ára. Skýra má aukningu á byggingar á viðhaldsframkvæmdir að hluta.
Rafmagnsnotkun
ÁTVR þekkir til fulls rafmagnsnotkun á Stuðlahálsi 2 og á 8.494 fermetrum Vínbúða (32) eða um 73% heildarfermetrafjölda Vínbúða. Raforkunotkunin var 1,558 MWst á þessum fermetrum. ÁTVR hefur ekki fullnægjandi vitneskju um rafmagnsnotkun í leiguhúsnæði þar sem rafmagn er hluti af leiguverði eða öðrum rekstrarkostnaði. Heildarnotkun er áætluð 1.898 MWst eða sem svarar um 89 kWst/m2. Stuðlaháls er með 72 kWst/m2 og þekktar Vínbúðir 106 kWst/m2. Það er aukning um 0,9% frá fyrra ári.
Uppruni raforku: 100% vatnsorka
Heitavatnsnotkun
Vitneskja um heitavatnsnotkun er sömu takmörkunum háð og vitneskja um rafmagnsnotkun. ÁTVR þekkir til fulls heitavatnsnotkun á Stuðlahálsi 2 og 5.316 fermetrum Vínbúða (17) eða um 45% af heildarfermetrafjölda Vínbúða. Heitavatnsnotkunin var 94.672 m3 á þessum fermetrum. Heildarnotkun er áætluð 125.451 m3 sem gerir um 6,1 rúmmetra á hvern fermetra húsnæðis. Stuðlaháls með 7,6 m3/m2 og þekktar Vínbúðir 4,8 m3/m2. Það er aukning um 5,6% frá fyrra ári.
Sé miðað við systurfyrirtækin á Norðurlöndum þá er minnst rafmagnsnotkun á Vínbúð hjá okkur. Umreiknað miðað við heildarfermetrafjölda er áætluð heildarnotkun rafmagns tæplega 2 GWst á ári og heitt vatn 125 þúsund rúmmetrar.
GRÆNT SKORKORT | 2014 | 2015 | 2016 | Markmið 2016 | Útreikningar |
---|---|---|---|---|---|
Orkunotkun - Stuðlaháls 2 | Notkun meðalheimilis | ||||
Rafmagn | 121 | 130 | 131 | 120 | (5,0 MWst pr. ár) |
Heitt vatn | 44 | 47 | 60 | 45 | (573,3 m3) |
Heitt vatn - snjóbræðsla | 50 | 66 | 60 | 65 | (573,3 m3) |
Rafmagn Vínbúðir | m2 | kWst | kWst/m2 | Heimili | |
---|---|---|---|---|---|
Orkunotkun | Notkun meðalheimilis | ||||
32 af 50 Vínbúðum | 8.494 | 904.176 | 106 | 181 | (5,0 MWst pr. ár) |
G4-EN6
Lækkun á orkunotkun
Markvisst unnið að innleiðingu á LED lýsingu í viðhaldi á Vínbúðum. Í byrjun árs 2016 var Vínbúðin á Akranesi endurnýjuð og skipt út glóperum og LED lýsing sett þar sem henni var viðkomið. Einnig voru settir nýir ofnar ásamt því að rafmagn og pípulagnir voru endurnýjaðar í heild sinni. Lækkun á orkunotkun er um 30% frá því að lýsing var endurnýjuð.
Hér er orkunotkun í Vínbúðinni á Akranesi frá árinu 2005
Ársnotkun - kWhW
LED ljós eða sparpera er sett upp þegar Vínbúðir eru endurnýjaðar.
Helsti kostur sparperunnar er 80% orkusparnaður miðað við glóperu, hún endist í 6-10 ár og ekki er hætta á íkveikju vegna ofhitnunar.
G4-EN15
Bein losun gróðurhúsalofttegunda (GHL)
G4-EN16
Óbein losun gróðurhúsalofttegunda (ghl) í gegnum orkunotkun
G4-EN17
Óbein losun gróðurhúsalofttegunda (ghl)
G4-EN30
Mikilsverð umhverfisáhrif vegna flutnings á framleiðsluvörum og öðrum vörum og hráefni sem fyrirtækið notar þ.m.t. ferðir starfsmanna
ÁTVR gerir sér grein fyrir því að loftslagsbreytingar af mannavöldum eru staðreynd. Með því að skrifa undir yfirlýsingu í loftlagsmálum skuldbindur fyrirtækið sig til að að draga úr þeim í starfsemi sinni. Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna, verndun jarðarinnar, númer 13 er hér í öndvegi.
ÁTVR kolefnisjafnar allan beinan útblástur, 134 tonn og flug 24 tonn, alls 158 tonn. Þar sem flug er keypt frá þriðja aðila þá verður til jákvætt kolefnisfótspor (e positive karbon footprint). Með því stuðlum við sjálfbærum rekstri.
Helstu umhverfisáhrifum vegna vörudreifingar má skipta í tvennt. Í fyrsta lagi losun koltvísýrings vegna eldsneytisbrennslu og í öðru lagi slit á vegum vegna akstur.
Akstur
Í árslok 2016 rak ÁTVR 50 Vínbúðir sem seldu tæplega 21 milljón lítra af áfengi sem er nær eingöngu dreift miðlægt frá vöruhúsi á Stuðlahálsi. ÁTVR flytur um 80% áfengis með eigin bílum en býður út um 20%. Eigin bílar flytja um höfuðborgarsvæðið, Borgarnes, Akranes, Suðurnesin og Suðurland að Hvolsvelli. ÁTVR flytur tóbak á höfuðborgarsvæðinu með eigin bílum en býður út restina. Því var markmið hækkað við eigin flutning en stóð í stað með aðkeyptan.
Heildarnotkun eldsneytis á flutningabíla ÁTVR var 39.557 lítrar og eknir kílómetrar 121.987. Aukninguna má skýra með aukinni dreifingu með eigin bílum. Þrír sendiferðabílar fóru 47.068 km og eyddu rúmlega 4.000 lítrum. Þetta samsvarar því að um 119 tonn af CO2 fari út í andrúmsloftið.
Heildarnotkun eldsneytis á fólksbíla ÁTVR var tæplega 7.000 lítrar og eknir kílómetrar um 72.526. Þetta samsvarar því að um 15 tonn af CO2 fari út í andrúmsloftið.
ÁTVR nýtti tólf dísilbíla á árinu 2016. Heildareldsneytisnotkun var 50.584 lítrar af dísilolíu og eknir kílómetrar voru 241.581. Heildarlosun var 134 tonn af CO2. Samkvæmt upplýsingum á vef Kolviðar er verð vegna kolefnisjöfnunar 2 kr./kg CO2. Kostnaður ÁTVR við kolefnisjöfnun vegna aksturs á bílum nam því 268.000 krónum sem samsvarar því að gróðursetja 1.254 tré.
Umfang aksturs vegna dreifingar þriðja aðila utan höfuðborgarsvæðisins er 113 tonn af CO2. Miðað er við tölur frá cefic.org en þar er áætlað að losun sé 61 g af CO2/tonnkílómetra.
Útblástur vegna orkunotkunar var bætt inn í útreikninga. Áætlað er að notaðar hafi verið tæplega 2 gWst af rafmagni og 124.000 rúmmetrar af heitu vatni fyrir allan rekstur. Áætlaðað er 21 tonn* af útblæstri losni við framleiðslu rafmagns og 64 tonn** CO2 ígildi við framleiðslu heits vatn. Orka náttúrunnar kolefnisjafnar um 8% af útblæstri eða 8 tonn.
*Losun hjá Orku náttúrunnar er um 11 g/kWst.
**Magfaldað með 46,67 til að finna kWst.
FLUG STARFSFÓLKS
Þó að flug falli undir óbein áhrif var ákveðið að kolefnisjafna allt flug. Starfsfólk ÁTVR flaug samtals 27 ferðir til og frá Íslandi á árinu 2016. Samkvæmt reiknilíkani Kolviðar um kolefnislosun var hún samtals um 14 tonn CO2. Miðað við að verð kolefnisjöfnunar sé 2 kr./kg CO2 þá er kostnaður ÁTVR við kolefnisjöfnun flugs 28.000 krónur. Fjöldi trjáa sem þarf að gróðursetja er 131.
Í innanlandsflugi voru samtals 68 ferðir, flestar til Akureyrar. Samkvæmt reiknilíkani á Kolviði var losun samtals 10 tonn CO2. Miðað við að verð kolefnisjöfnunar sé 2 kr./kg CO2 þá er kostnaður ÁTVR við kolefnisjöfnun innanlandsflugs 20.000 krónur. Fjöldi trjáa sem þarf að gróðursetja er 94 og munu þau taka þátt í andardrætti Íslands um ókomin ár.
ÓBEIN LOSUN
Könnun á ferðahögum starfsfólks til og frá vinnu var endurtekin. Niðurstaða var sú að 94 tonn af CO2 losna út í andrúmsloftið vegna samgangna starfsfólks. Betri niðurstaða en árið 2015 þrátt fyrir að ársverkum fjölgaði.
Þetta má þakka:
- Samgöngusamningum (52% sumar og 33% vetur)
- Minni mengun frá einkabílum 172 í 157 gr/km
- Styttri meðalvegalengd frá vinnustað, 6,1 km
Markmiðið var að minnka losun vegna ferða starfsfólks til og frá vinnu niður í 97 tonn og náðist það.
Langtímamarkmið ÁTVR er að draga úr notkun bifeiða og nýta vistvænustu bíla sem verða í boði í framtíðinni. Stefnt er að því að útblástur minnki um 40% fyrir árið 2030. Í úrgangsmálum er markmiðið um endurvinnsluhlutfall 91% og stefnt að því að það verði 98% árið 2030. Urðaður úrgangur var um 26 tonn á síðasta ári stefnt er að því að hann fari í 8 tonn sem samsvarar 75% samdrætti.
Til að draga úr útblæstri í umfangi 2 og 3 er hægt að spara rafmagn og heitt vatn. Setja upp LED perur sem víðast í byggingum. Einnig er hægt að skoða strandsiglingar, auka rafrænar skjalasendingar, nota margnota drykkjarmál og burðarpoka, halda fjarfundi, minnka plastnotkun, stunda innkaup af nærsvæði, kaupa vistvænan mat, minnka úrgang, leggja áherslu á endurnotkun og endurvinnslu, nýta vistvænar samgöngur og vistvæn innkaup. Setja í samninga við birgja ákvæði um kolefnisjöfnun í viðskiptum með vörur og þjónustu. Á vef Vínbúðanna eru nánari upplýsingar um vinnu fyrirtækisins í loftslagsmálum og uppfærast tölur reglulega. Starfsfólk ÁTVR vill vera fyrirmynd í samfélagslegri ábyrgð og mynda jákvætt kolefnisfótspor sem styður náttúruna okkar.
Tonn CO2 | Áhrif | 2014 | 2015 | 2016 | Markmið 2016 |
---|---|---|---|---|---|
Eigin fólksbílar | Bein | 18 | 14 | 15 | 14 |
Eigin flutningabílar | Bein | 72 | 78 | 109 | 89 |
Eigin sendiferðabílar | Bein | 12 | 10 | 10 | 13 |
Raforkunotkun | Óbein-2 | 21 | 21 | 20 | |
Varmanotkun | Óbein-2 | 61 | 64 | 60 | |
Keyptur flutningur | Óbein-3 | 113 | 113 | 113 | 109 |
Flug innanlands | Óbein-3 | 10 | 10 | 10 | 10 |
Flug erlendis | Óbein-3 | 19 | 15 | 14 | 17 |
Starfsfólk, ferðir úr og í vinnu | Óbein-3 | 103 | 103 | 94 | 97 |
Bílaleigubílar og leigubílar | Óbein-3 | 1 | 1 | 1 | 1 |
Urðun sorps | Óbein-3 | 19 | 22 | 21 | 22 |
Sjóflutningar áfengis | Óbein-3 | 548 | 549 | 569 | ** |
Sjóflutningar tóbaks | Óbein-3 | 11 | 10 | 10 | ** |
Losun GHL - samtals | 1.007 | 1.051 | |||
Kolefnisjafnað | 135 | 166 | |||
Kolefnisfótspor | 872 | 885 |
* Breyttar reikniforsendur
** Ekkert markmið
Dísilolía lítrar | 2014 | 2015 | 2016 | Meðaleyðsla |
---|---|---|---|---|
Fólksbílar | 8.800 | 6.946 | 6.983 | 9,6 |
Eigin flutningabílar | 27.010 | 30.036 | 39.577 | 32,4 |
Sendiferðabílar | 5.390 | 4.095 | 4.024 | 8,5 |
Alls | 41.200 | 41.077 | 50.584 |
Eknir km | 2014 | 2015 | 2016 |
---|---|---|---|
Fólksbílar | 84.898 | 66.437 | 72.526 |
Eigin flutningabílar | 78.477 | 86.537 | 121.987 |
Sendiferðabílar | 51.609 | 45.886 | 47.068 |
Alls | 214.984 | 198.860 | 241.581 |
Eigin flutningur – Kolefnisfótspor ÁTVR
Bein losun CO2-ígildiTonn
G4-EN18
Umfang losunar gróðurhúsalofttegunda (ghl)
Heildarlosun koltvísýrings þar sem ÁTVR hefur bein áhrif er 134 tonn og allt flug er 24 tonn. Það gerir 429 kg af koltvísýringi á hvern starfsmann fyrirtækisins.
Eingöngu er dísilolía notuð á tólf bifreiðar. Heildarnotkun er 50.584 lítrar eða 176 lítrar á hvern starfsmann. Heildarsala áfengislítra jókst um 6,45% á árinu.
Óbein losun er 917 tonn af koltvísýringi sem eru um 2.940 kg á hvern starfsmann.
Heildar kolefnisspor ÁTVR er því 1.051 tonn en það vantar að reikna lífsferil vöru og innkaup til reksturs og því er þetta ekki endanleg tala.
Tonn CO2 | CO2 | Stöðugildi 2016 (kg) | Stöðugildi 2015* (kg) | Breyting % | Áhrif | Umfang* | Kolefnisjöfnun | Tré |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Eigin bílar | 134 | 429 | 355 | 21,0 | Bein | 1 | Kolefnisjafnað | 1.254 |
Rafmagn | 21 | 67 | 73 | -8,0 | Óbein | 2 | ||
Heitt vatn | 64 | 205 | 213 | -3,5 | Óbein | 2 | ||
Flug | 24 | 77 | 87 | -11,6 | Óbein | 3 | Kolefnisjafnað | 225 |
Keyptur flutningur | 113 | 362 | 394 | -8,1 | Óbein | 3 | ||
Starfsmenn, til og frá vinnu | 94 | 301 | 359 | -16,1 | Óbein | 3 | ||
Sjóflutningar áfengis | 569 | 1.824 | 1.913 | -4,7 | Óbein | 3 | ||
Sjóflutningar tóbaks | 10 | 32 | 35 | -8,0 | Óbein | 3 | ||
Bílaleigubílar | 1 | 3 | 3 | -8,0 | Óbein | 3 | ||
Urðun sorps | 21 | 67 | 77 | -12,2 | Óbein | 3 | ||
Kolefnisfótspor | 1.051 | 3.369 | 3.509 | -4,0 |
Lítrar | Stöðugildi | Áhrif | Umfang* | Kolefnisjöfnun | |
---|---|---|---|---|---|
Dísilolía 2016 | 50.584 | 162 ltr./stg. | Bein | 1 | Kolefnisjafnað |
Dísilolía 2015 | 41.077 | 143 ltr./stg. | Bein | 1 | Kolefnisjafnað |
ÁTVR kolefnisjafnar allan beinan útblástur, 134 tonn og flug 24 tonn, alls 158 tonn hjá Kolviði og er kostnaðurinn við það 316.000 krónur sem samsvarar því að gróðursett séu 1.479 tré.
Þar sem flug er keypt frá þriðja aðila þá verður til jákvætt sótspor (e positive karbon footprint). Með því stuðlum við sjálfbærum rekstri.
* 1 bein áhrif: G4-EN15
2 óbein áhrif: G4-EN16
3 óben áhrif: G4-EN17
G4-EN23
Magn úrgangs og förgun
Tonn | Umhverfisáhrif | 2014 | 2015 | 2016 | % breyting | CO2-e losun |
Endurunnið | ||||||
Bylgjupappi | Hverfandi áhrif vegna endurvinnslu, óbein áhrif vegna flutnings | 171 | 194 | 231 | 19,2 | -1.552 |
Plastumbúðir | Hverfandi áhrif vegna endurvinnslu, óbein áhrif vegna flutnings | 23,9 | 22,3 | 9,1 | 23,0 | -4 |
Plast til Odda | Hverfandi áhrif vegna endurvinnslu | 18,4 | 23,0 | -8 | ||
Gæðapappír | Hverfandi áhrif vegna endurvinnslu | 3,2 | 3,7 | 6,9 | 89,0 | -46 |
Önnur flokkun | Hverfandi áhrif vegna endurvinnslu | 2,1 | 3,4 | 9,8 | 186,8 | -16 |
Lífrænt til moltugerðar | Hverfandi áhrif vegna endurvinnslu | 2,6 | 4,8 | 5,1 | 7,2 | -14 |
Samtals endurunnið | 203,0 | 228,0 | 280,5 | 23,0 | -1.640 | |
Urðað | ||||||
Blandaður úrgangur | Jarðvegsmengun | 18,2 | 20,6 | 24,6 | 19,5 | 20 |
Samtals urðað | 18,2 | 20,6 | 24,6 | 19,5 | 20 | |
Samtals úrgangur | 221,2 | 248,6 | 305,1 | 22,7 | -1.621 | |
Endurvinnsluhlutfall % | 92 | 92 | 92 | |||
Markmið % | 89 | 90 | 91 | |||
Grófur úrgangur | 10,2 | 17,6 | 30,0 | 70,2 | 0 | |
Áætlaður heildarúrgangur | 248 | 278 | 318 | 14,4 | ||
Úrgangur pr. stöðugildi [tonn] | 0,9 | 1,0 | 1,0 |
Forsendum töflu breytt milli ára. Áður var grófur úrgangur skipt í hlutföllunum 30/70 í urðað/endurunnið en nú er hann tekinn sér. Grófur úrgangur tengist ekki daglegum rekstri heldur oftast tímabundnum framkvæmdum. Steinsteypa, innréttingar og byggingahlutar úr timbri.
Losun CO2 vegna urðaðs úrgangs er: 20 tonn*
Með því að flokka úrgang til endurvinnslu í stað þess að urða hann má draga verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda. Eins og sést í töflu G4-EN23 flokkaði Vínbúðin 281 tonn af úrgangi. Þannig kom fyrirtækið í veg fyrir að út í andrúmsloftið losnuðu gróðurhúsalofttegundir sem jafngilda rúmlega 1.640 tonnum** af CO2. Það samsvarar ársnotkun á 547 fólksbílum (m.v. 3 tonn losun á fólksbíl). Eða samsvarandi akstri allra bifreiða ÁTVR í 12 ár.
96% af verslunum m.v. lítrasölu eru með vigtaðan úrgang. Því má áætla að heildarumfang úrgangs sé 318 tonn, tæplega 26 tonn urðuð og 292 endurunnin. Þjónustuaðilar eru sífellt að bæta þjónustu og skráningu og því bætist meira við af upplýsingum og skýrir það hækkun vigtaðs úrgangs auk söluaukningar á milli ára um 20%.
* Vigtaður blandaður úrgangur margfaldaður með stuðlinum 0,8. Heimild IPCC.
** Bylgjupappi er margfaldaður með CO2-ígldis stuðlinum 6,71, plastumbúðir með stuðlinum 0,433, lífrænt til moltugerðar með 2,754 og grófur úrgangur og önnur flokkun með 1,6. Miðað er við að viðbótarvinna tækja sem valda útblæstri koldíoxíðs sé sambærileg hvort sem bylgjupappinn og pappírinn er fluttur á urðunarstað til urðunar eða fluttur úr landi til endurvinnslu. Metan er margfaldað með stuðlinum 25. Heimild: Guidelines for the use of LCA in the waste management sector, eftir Helgu J. Bjarnadóttir, Guðmundur B. Friðriksson ofl.
Úrgangur – Kolefnisfótspor ÁTVR
Óbein losun CO2-ígildiTonn
G4-EN27
Umfang aðgerða sem stuðla að minnkun umhverfisáhrifa á framleiðslu og/eða þjónustu
Lífrænt ræktuð vín | Fjöldi teg. | Seldir ltr. | % af seldum ltr. | % af seldum ltr. léttvíns | % af seldum ltr. bjórs | % af seldum ltr. – annað áfengi | Einingar |
---|---|---|---|---|---|---|---|
2016 | 113 | 183.589 | 0,88% | 4,64% | 0,19% | 0,08% | 250.720 |
2015 | 107 | 136.493 | 0,70% | 4,03% | 0,12% | 0,11% | 189.814 |
2014 | 69 | 90.291 | 0,47% | 2,41% | 0,10% | 0,02% | 126.575 |
Rafrænar skjalasendingar
2014 | 2015 | 2016 | % | |
---|---|---|---|---|
Fjöldi reikninga | 55.816 | 57.186 | 56.811 | -1% |
Fjöldi rafrænna reikninga | 33.235 | 32.126 | 37.967 | 18% |
Hlutfall rafrænna reikninga | 60% | 56% | 67% | 19% |
Fjöldi pantana | 45.479 | 46.397 | 46.230 | 0% |
Fjöldi rafrænna pantana | 14.627 | 14.492 | 16.810 | 16% |
Hlutfall rafrænna pantana | 32% | 31% | 36% | 15% |
Fjöldi sölureikninga | 31.351 | 30.388 | 30.550 | 1% |
Fjöldi rafrænna sölureikninga | 9.694 | 8.802 | 9.707 | 10% |
Hlutfall rafrænna sölureikninga | 31% | 29% | 32% | 10% |
Millifærslupantanir/innrisala | 37.467 | 41.492 | 46.223 | 11% |
Sölureikningar m.v. veltu | 51% | 52% | 51% | -2% |
Hlutfall af heildarinnkaupum | 89%* | 89% | 89% | 0% |
*Leiðrétting frá fyrra ári
Lykiltölur 2016 | |
---|---|
28 milljarðar í vörukaup | |
10.581 gjaldareikningar | |
26.621 pantanir til ytri birgja | |
46.223 innri pantanir/sölureikningar |
G4-EN28
Hlutfall seldra vara og umbúða sem eru endurunnar eftir tegund
Aðfangakeðjan og endurvinnsla skiptir ÁTVR miklu máli. Endurvinnslan hf., ásamt umboðsmönnum hennar, sér um móttöku allra einnota drykkjarvöruumbúða hérlendis, greiðir út skilagjald þeirra, undirbýr þær til útflutnings og selur til endurvinnslu.
Skil á drykkjarvöruumbúðum lækkaði milli ára, en alls var hlutfallið 85% af seldum umbúðum. Helsta skýringin á minni skilum er fjöldi ferðamanna en þeir þekkja fæstir hvernig skilakerfið virkar. Alls greiddi Endurvinnslan 1.940 milljónir fyrir þær 121 milljón umbúða sem skiluðu sér.
Á árinu nam heildarsala drykkjarvöruumbúða 142 milljónum eininga þar af voru 45 milljónir seldar í Vínbúðunum. Gera má ráð fyrir að skil á umbúðum frá Vínbúðunum fylgi almennum skilum og því hafi verið skilað til Endurvinnslunnar rúmlega 38 milljónum eininga eða 85% af þeim 45 milljónum sem seldar eru í Vínbúðunum.
Sala eininga í Vínbúðum | 2014 | 2015 | 2016 | Hlutfall skila 2016* | Áætluð skil 2016 | Breyting 2015/2016 |
---|---|---|---|---|---|---|
Glerflöskur | 8.609.569 | 9.491.156 | 10.284.918 | 81 | 8.310.214 | 7,7% |
Plast (PET) | 380.612 | 397.199 | 457.896 | 85 | 389.212 | 13,3% |
Áldósir | 31.109.559 | 31.389.913 | 33.766.663 | 87 | 29.410.763 | 7,0% |
Box | 452.938 | 458.540 | 458.617 | Ekki skilagjald | 0,0% | |
Ferna | 64.622 | 91.565 | Ekki skilagjald | 29,4% | ||
Annað | 76.540 | 20.081 | 23.168 | Ekki skilagjald | 13,3% | |
Alls seldar einingar | 40.629.218 | 41.821.511 | 45.082.827 | 38.110.189 | 7,2% |
*Tölur frá Endurvinnslunni
Skil drykkjarumbúða til Endurvinnslunnar | 2014 | 2015 | 2016 | |
---|---|---|---|---|
Sala milljónir eininga | 126 | 134 | 142 | |
Skil milljónir eininga | 110 | 116 | 121 | |
Skilahlutfall % | 88 | 88 | 85 |
Skil eftir tegundum % | 2014 | 2015 | 2016 | |
---|---|---|---|---|
Ál | 89 | 91 | 87 | |
Plast | 88 | 89 | 85 | |
Gler | 85 | 84 | 81 |
G4-EN29
Fjárhæð mikilsháttar sekta og tæmandi listi yfir viðurlög sem fyrirtækið hefur verið látið sæta vegna brota gegn umhverfislögum og -reglum
Engar sektir eða viðurlög á starfsárinu 2016 vegna brota gegn umhverfislögum og -reglum og hefur aldrei gerst.
G4-LA1
Starfsmannavelta eftir aldri, kyni og starfsstöð
Starfsmannavelta eftir ráðningarformi og starfi | Fullt starf | Hlutastarf | Tímavinna | Alls |
---|---|---|---|---|
Dreifingarmiðstöð | 21% | 0% | 60% | 29% |
Skrifstofa | 9% | 0% | 0% | 8% |
Starfsfólk í Vínbúð | 14% | 23% | 26% | 25% |
Stjórnendur í Vínbúð | 7% | 16% | 0% | 12% |
Alls | 13% | 18% | 27% | 22% |
Starfsmannavelta eftir kyni og aldri 2016 | Karlar | Konur | <30 | 30-50 | >50 | Alls |
---|---|---|---|---|---|---|
Dreifingarmiðstöð | 30% | 23% | 41% | 23% | 12% | 29% |
Skrifstofa | 8% | 7% | 0% | 12% | 4% | 8% |
Starfsfólk í Vínbúðum | 18% | 28% | 25% | 25% | 22% | 25% |
Stjórnendur í Vínbúðum | 4% | 15% | 17% | 16% | 7% | 12% |
Alls | 19% | 24% | 27% | 21% | 15% | 22% |
Starfsmannavelta er reiknuð út frá öllu starfsfólki sem var í starfi á árinu 2016. Starfsmannavelta er reiknuð: hættir starfsmenn/heildarfjöldi starfsmanna.
G4-LA5
Sérstök átaksverkefni - Heilsufarsmælingar
- Reykja ekki
- Eðlilegt kólesteról
- Eru í kjörþyngd
- Fituprósenta (BMI) eðlileg
- Hreyfa sig
- Eðlilegur blóðþrýstingur
Sérstök átaksverkefni - Samgöngukannanir
Árlega hafa verið framkvæmdar samgöngukannanir til að fá verðmætar upplýsingar sem notast í stefnumótandi vinnu í umhverfismálum og samfélagslegri ábyrgð. Reykjavíkurborg hefur látið kanna umferðarhegðun höfuðborgarbúa til og frá vinnu og það er gaman að bera saman umferðarmynstur starfsfólks ÁTVR og borgarbúa yfir sumar og vetur. Einnig hefur Vegagerðin látið Land-ráð sf. gera fyrir sig kannanir um ferðahegðun borgarbúa og er einkabíllinn hærri þar. Í könnun fyrir veturinn 2016 kemur í ljós að 78% borgarbúa aka á einkabíl en 42% starfsmanna ÁTVR.
Einnig telur starfsfólk ÁTVR að samgöngusamningur og hreyfing í kjölfarið hafi góð áhrif á heilsu sína en rúm 70% eru sammála. Enginn ósammála. Óvissir eru 12% og hvorki né 16% svara.
Einkabíll | Strætisvagn | Hjóla | Ganga | Samferða | |
ÁTVR vetur 2016 | 42% | 12% | 13% | 28% | 5% |
Borgarbúar vetur 2016 | 67% | 7% | 6% | 13% | 7% |
Einkabíll | Strætisvagn | Hjóla | Ganga | Samferða | |
ÁTVR sumar 2016 | 32% | 8% | 25% | 33% | 3% |
Borgarbúar vor 2016 | 65% | 10% | 8% | 10% | 7% |
G4-LA6
Tíðni meiðsla, starfstengdra sjúkdóma, fjarverudaga og dauðsfalla sem tengjast starfi eftir starfsstöðvum
Á árinu voru skráð sjö slys sem er hækkun frá árinu áður. Fjögur slys voru til og frá vinnu, þar af þrjú hálkuslys og eitt reiðhjólaslys. Þrjú slys urðu á starfsstöð. Markmiðið er öruggur og slysalaus vinnustaður. Fjarvistir vegna veikinda og veikinda barna jukust á árinu, voru 2,3% í fyrra en eru 2,5% í ár. Mikil veikindi voru vegna inflúensu á fyrri hluta ársins og skýrir það að mestu mismuninn.
ÁTVR fékk gullvottun í Hjólavottun vinnustaða. Vottunin er tæki til að innleiða bætta hjólreiðamenningu og þar með draga úr umhverfisáhrifum.
Slys | Karlar | Konur | Alls |
---|---|---|---|
2016 | 4 | 3 | 7 |
2015 | 2 | 4 | 6 |
2014 | 4 | 6 | 10 |
Fjarvistir vegna veikinda og veikinda barna í hlutfalli við unnar klukkustundir | Konur | Karlar | Heild 2016 | Heild 2015 | Heild 2014 |
---|---|---|---|---|---|
Vínbúðir | 2,3% | 2,9% | 2,6% | 2,3% | 2,3% |
Dreifingarmiðstöð | 3,6% | 3,3% | 3,4% | 3,5% | 3,2% |
Skrifstofa | 2,2% | 1,8% | 2,0% | 2,0% | 1,6% |
ÁTVR í heild | 2,3% | 2,7% | 2,5% | 2,3% | 2,2% |
G4-LA9
Meðaltími fræðslustunda á starfsmann á ári eftir starfshópum og kyni
Starfsþróun | Starfsfólk | Konur | Karlar | Tímar | Tímar alls | Tímar/stg. | Fjöldi námsk. |
---|---|---|---|---|---|---|---|
Að stjórna jafningjum | 15 | 55% | 45% | 7 | 105 | 0,34 | 1 |
Ferð til fjár - DM | 40 | 10% | 90% | 1,5 | 60 | 0,19 | 2 |
Fyrirlestur um næringu - DM | 42 | 12% | 88% | 1,5 | 63 | 0,20 | 1 |
Undirbúningur fyrir álagstíma | 22 | 50% | 50% | 1 | 22 | 0,07 | 1 |
Heilsa og lífsstíll | 17 | 59% | 41% | 1 | 17 | 0,05 | 1 |
Heilsuefling | 175 | 57% | 43% | 1 | 175 | 0,56 | 7 |
Nýliðafræðsla | 68 | 57% | 43% | 4,5 | 306 | 0,98 | 2 |
Umhverfismál | 20 | 50% | 50% | 1 | 20 | 0,06 | 1 |
Vinnuvélanámskeið | 6 | 33% | 67% | 12 | 72 | 0,23 | 1 |
Öryggisnámskeið | 58 | 78% | 22% | 2 | 116 | 0,37 | 10 * |
Ársfundur | 115 | 54% | 46% | 4 | 460 | 1,47 | 1 |
Landshlutafundir | 38 | 60% | 40% | 4 | 152 | 0,49 | 4 |
Vínbúð | |||||||
Vínfræði I | 37 | 62% | 38% | 25 | 925 | 2,96 | 2 |
Vínfræði II | 14 | 79% | 21% | 28 | 392 | 1,26 | 1 |
Fræðsluskot | 354 | 67% | 33% | 2 | 708 | 2,27 | 23 * |
Fræðsluferðir | 8 | 25% | 75% | 32 | 256 | 0,82 | 1 |
Þemadagar | 376 | 60% | 40% | 3 | 1128 | 3,62 | 6 |
ÁTVR fjárfesti í tæplega 5.000 klukkustundum til fræðslu og þjálfunar starfsmanna. Það jafngildir 124 vinnuvikum.
Fræðslustundir eru 17 á hvert stöðugildi eða rúmlega 2 dagar á starfsmann. Á síðasta ári voru tæplega 5.700 klukkustundir í fræðslu og þjálfun eða 141 vinnuvika. Fræðslustundum fækkaði og er skýringin að ekki var WSET nám og skyndihjálparnámskeið. Einnig voru færri nemendur í Vínfræði I og II sem og á vinnuvélanámskeiði.
Í heilsueflingu eru sjö fjölbreyttir fræðslufundir að Stuðlahálsi sem lúta að andlegri og líkamlegri heilsu starfsfólks. Boðið var upp á fræðslu um kvíða, mikilvægi svefns, sjálfsnudd, hlaupa- og hjólanámskeið, fróðleik um vítamín og næringu svo dæmi sé tekið. Ekki eru í þessum tölum tímar um fyrirlestra og þátttöku starfsfólks í símenntun hjá Stjórnvísi, Dokkunni, hjá upplýsingatæknifyrirtækjum og háskólasamfélagi.
G4-LA11
Hlutfall starfsmanna sem undirgangast reglulegt frammistöðu- og starfsþróunarmat, m.a. með tilliti til kyns og starfsvettvangs
Öllu starfsfólki var boðið að fara í frammistöðusamtal á árinu. Unnið er eftir matskerfi þar sem bæði starfsmaðurinn sjálfur og yfirmaður meta frammistöðu á fyrirfram skilgreindum þáttum. Markmiðið er að slíkt samtal eigi sér stað einu sinni á ári og að því sé svo fylgt eftir með óformlegra samtali sex mánuðum síðar. Unnið er að endurskoðun frammistöðusamtala og stefnt á að taka upp endurskoðað verklag í upphafi næsta árs. Starfsþróunarstefna ÁTVR var unnin og samþykkt í árslok. Stefnan er sett fram á grundvelli vinnustaðagreininga, frammistöðusamtala og rýnihópa um fræðsluþörf sem störfuðu í tengslum við verkefnið.
G4-HR4
Starfsemi og/eða birgjar sem hafa verið uppvísir að eða eru líklegir til að sniðganga lög um félagafrelsi og sameiginlegar kjaraviðræður og ráðstafanir sem hafa verið gerðar til að tryggja slík réttindi
ÁTVR er einungis með starfsemi á Íslandi og því er ekki talin veruleg hætta á að brotið sé á réttindum starfsmanna varðandi samningsrétt eða þátttöku í stéttarfélögum.
G4-PR1
Gæðaeftirlit áfengis
Vörugæði og neysluöryggi eru meginstoðir í ábyrgri starfsemi ÁTVR. Fjöldi skilaðra eininga á árinu voru 3.396 sem er samdráttur um 15% á milli ára. Flest vöruskil má rekja til korkskemmda. Af hverjum 100 þúsund seldum einingum var um 8 skilað. Fjöldi innkallana á árinu voru 18. Helstu orsakir voru frávik frá gæðum.
Vottun skynmats hélt áfam á árinu. Þriðji aðili vottar skynmatsferlið og kom reglulega fulltrúi frá BSI á Íslandi, sem er faggild skoðunarstofa, og tók út verklagið. Tilgangurinn með vottun skynmats og úttektum er að tryggja að skjalfestu verklagi sé fylgt og að skuldbinding ÁTVR um að vinna að stöðugum umbótum í skynmatsferlinu sé til staðar.
Í lok september var alkóhólmælir tekinn í notkun. Með honum er á fljótlegan hátt hægt að mæla vínandamagn, eðlisþyngd o.fl. þætti með mikilli nákvæmni. Mælirinn er notaður flesta daga við reglubundið eftirlit með söluvöru og við eftirlit með sýnishornum sem berast vegna umsókna um sölu á áfengi. Í viku hverri eru að jafnaði mæld um 50 sýnishorn.
Tilgangurinn er fyrst og fremst að tryggja að vínandi í áfengi sé í samræmi við merkingar. Niðurstöður mælinga hingað til eru jákvæðar að því leyti að langflestar vörur bera réttar alkóhólmerkingar. Frávik eru flest minni háttar, en þó hefur vörum verið hafnað vegna þess að raunverulegu alkóhólinnihaldi og merkingum bar ekki saman.
Vöruskil | 2016 | 2015 | 2014 |
---|---|---|---|
Fjöldi skilaðra eininga | 3.396 | 3.984 | 3.017 |
Af 100.000 seldum einingum | 8 | 10 | 7 |
G4-PR3
Gerð vöru- og þjónustuupplýsinga sem krafist er í verklagsreglum og hlutfall vöru og þjónustu sem fellur undir slíkar upplýsingakröfur
Mikilvægasti vöru- eða þjónustuflokkur er áfengir drykkir. Óáfengir drykkir, gjafapakkningar, tóbak o.fl. eru því ekki í þessum vísi. ÁTVR framkvæmir ekki eigin merkingu á vörum. Ábyrgð fyrirtækisins felst fremur í að kanna hvort þær séu í samræmi við lög og reglur.
Reglugerð um vöruval, innkaup og dreifingu áfengis, nr. 1106/2015 og miðlun upplýsinga um matvæli til neytenda, liggja til grundvallar mati á vörum og umbúðum. Þetta er gert í tengslum við innkaup á öllum áfengum drykkjum.
Já | Nei | Hlutfall áfengis sem hefur verið athugað 3) | Hlíting % | ||
---|---|---|---|---|---|
1 Upprunaland innihalds | x | ||||
2 Alkóhólmagn | x | 7,7% | 100% | ||
3 Neysluöryggi - lítrar 1) | x | 44,1% | 98,3% | ||
4 Neysluöryggi - vörunúmer 1) | x | 54,4% | 99,8% | ||
5 Förgun og umhverfisáhrif og félagsleg áhrif 2) | x | 92,9% | 100% | ||
6 Lífræn vara | x | 0,88% | 100% | ||
7 Sanngjörn framleiðsla | x | 0,02% | 100% |
1) Vörur sem fara í gegnum skynmat hjá gæðaeftirliti ÁTVR
2) Hlutfall af skilagjaldsberandi umbúðum seldum hjá ÁTVR
3) Hlutfall eftir seldum lítrum (nema liður 4)
G4-PR5
Ánægja viðskiptavina
Íslenska ánægjuvogin
Þróun ÁTVR í samanburði við öll fyrirtæki sem eru mæld á kvarðanum 0–100.
- Öll fyrirtæki
- ÁTVR
Á heildina litið, hversu ánægð(ur) eða óánægð(ur) ertu með þjónustu Vínbúðarinnar?
Ánægja með þjónustu flokkað eftir stærð Vínbúða
2016 | 2015 | 2014 | |
---|---|---|---|
Stærri Vínbúðir | 4,39 | 4,29 | 4,26 |
Minni Vínbúðir | 4,54 | 4,46 | 4,39 |
Mælt á kvarðanum 1-5
Hversu gott eða slæmt finnst þér viðmót starfsfólks Vínbúðarinnar almennt vera?
Viðmót starfsfólks Vínbúðanna flokkað eftir stærð Vínbúða
Viðmót starfsfólks | 2016 |
---|---|
Stærri Vínbúðir | 4,50 |
Minni Vínbúðir | 4,74 |
Viðmið (Principles)
GLOBAL COMPACT
Siðareglur BSCI
Markmið siðareglna BSCI (Business Social Compliance Initiative) er að útlista þau gildi og meginreglur sem þátttakendur kappkosta að innleiða í viðskiptum við samstarfsaðila í aðfangakeðju fyrirtækisins. Þátttakendur samþykkja siðareglurnar þegar þeir gerast aðilar að BSCI.
11 meginreglur sem stefna að hámörkun verndar vinnuafls
Meginreglur BSCI eru byggðar á mikilvægum alþjóðlegum reglum á sviði vinnumála sem vernda réttindi launþega. Má þar nefna samninga og sáttmála Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO), leiðbeinandi reglur Sameinuðu þjóðanna um viðskipti og mannréttindi sem og viðmiðunarreglur Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) fyrir fjölþjóðleg fyrirtæki.
Meginreglurnar gera grein fyrir 11 grundvallarréttindum launþega sem þátttakendur skuldbinda sig til að innleiða í aðfangakeðju sinni með þrepaskiptri aðferð.
Réttur til félagafrelsis og kjarasamninga
Fyrirtækið virðir rétt launþega til að stofna stéttarfélög eða önnur samtök launafólks, og ganga til almennra kjarasamninga.
Sanngjarnt endurgjald
Fyrirtækið virðir rétt launþega til að fá sanngjarnt endurgjald fyrir vinnu sína.
Vinnueftirlit
Fyrirtækið tryggir heilsusamlegt og öruggt vinnuumhverfi, sinnir mati á áhættu og gerir allar nauðsynlegar ráðstafanir til að eyða eða draga úr henni.
Sérstök vernd fyrir ungt launafólk
Fyrirtækið veitir öllum starfsmönnum sem ekki teljast fullorðnir sérstaka vernd.
Engin vinnuþrælkun
Fyrirtækið beitir ekki nauðungarvinnu og mansali og nýtir sér ekki ófrjálst vinnuafl af neinu tagi.
Siðgæði í viðskiptaháttum
Fyrirtækið mun ekki þola neinum viðskiptaspillingu, fjárkúgun, fjársvik eða mútur.
Engin mismunun
Fyrirtækið veitir öllum jöfn tækifæri og mismunar ekki starfsmönnum.
Hóflegur vinnutími
Fyrirtækið fylgir lögum um vinnutíma.
Engin barnavinna
Fyrirtækið ræður ekki starfsmenn undir lögaldri.
Engar ótryggar ráðningar
Fyrirtækið ræður einungis starfsmenn á grundvelli staðfestra samninga og samkvæmt lögum.
Umhverfisvernd
Fyrirtækið gerir nauðsynlegar ráðstafanir til að koma í veg fyrir spjöll á umhverfinu