Heimsmarkmiðin
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun tóku gildi í byrjun árs 2016. ÁTVR hefur innleitt þau inn í ferla fyrirtækisins. Þetta eru víðtækustu markmið sem ríki heims hafa komið sér saman um og stefnt er að því að tryggja velmegun og mannréttindi um allan heim fyrir árið 2030.
Aðal áherslan hjá ÁTVR er að vinna í fimm heimsmarkmiðum en þau falla vel að áherslum fyrirtækisins. Ábyrg neysla (12) en þar koma lýðheilsusjónarmið við sögu, verndun jarðarinnar (13), jafnrétti (5 & 10), heilsa og vellíðan (3) og aðfangakeðjan en hún kemur sterk inn í restina af markmiðunum.
- Verkefnið góð heilsa allt árið. Boðið upp á árlega heilsufarsmælingu fyrir allt starfsfólk
- Samgöngusamningar, 53% starfsfólks yfir sumarið og 35% yfir veturinn
- Líkamsræktarstyrkir
- Boðið upp á fyrirlestra
- Fjarvistir frá vinnu 2,5%
- Þátttaka í Hjólum í vinnuna og Lífshlaupinu
- Lífshlaupið - efst í hlutfalli daga hjá fyrirtækjum með 400-799 starfsmenn
- WOWcyclothon
- ÁTVR framfylgir stefnu stjórnvalda um bætta lýðheilsu og samfélagslega ábyrgð í áfengis- og tóbaksmálum í sátt við samfélagið (3.5 og 3.a)
- Árangursmælingar. Skorkort Vínbúðanna og fleiri skorkort
- Margnota burðarpokar
- Hátt hlutfall rafrænna reikninga, 89% viðskiptavina m.v. veltu.
- Greitt í Pokasjóð, 12 milljónir
- ÁTVR hefur styrkt og starfað með aðilum sem sinna ýmsum mannúðar- og forvarnarmálum
- Matjurtagarður - sjálfbærniverkefni starfsfólks
- Fyrirmynd í samfélagslegri ábyrgð.
- Ánægja hjá viðskiptavinum.
- Skilríkjaeftirlit í Vínbúðum.
- Óútskýrð rýrnun 0,02%.
- 98% endurvinnsluhlutfall á úrgangi árið 2030. Endurvinnsluhlutfall í dag 92%
- ÁTVR framfylgir stefnu stjórnvalda um bætta lýðheilsu og samfélagslega ábyrgð í áfengis- og tóbaksmálum í sátt við samfélagið
- Lífsferilsgreining á vörusafni
- Ársskýrsla samkvæmt sjálfbærniviðmiðum Global Reporting Initiative (GRI)
- Loftslagsmarkmið til 2030, 40% samdráttur á CO2 og 98% endurvinnsluhlutfall á úrgangi. Endurvinnsluhlutfall í dag 92%
- Plast til Odda.
- Kolefnisjöfnun hjá Kolviði. Jákvætt sótspor
- Lífsferilsgreining á vörusafni.
- Allur pappír vistvænt vottaður og krafist er vistvænt vottaðra aðfanga frá birgjum.
- Uppfyllt fimm Græn skref í ríkisrekstri fyrir höfðustöðvar og innleiðing í öllum 50 Vínbúðum
- Vistvæn innkaup og grænt bókhald opinbera aðila
- Kuðungurinn - viðurkenning á framlagi fyrirtækja og stofnana til umhverfismála frá Umhverfisráðuneytinu